Skip to content. | Skip to navigation
| Til baka | Aðgerðaáætlunin | Lönd | Vörur | Mánaðarlegar fréttir | Tengiliðir |
Nóvember 2009Atriði til umhugsunar ... í hverjum mánuði!
Fáið hugmyndir og tillögur í "Úrræðunum fyrir ráðgjafa lítilla og meðalstórra fyrirtækja og fagfólk á sviði mannauðar"!
6. ástæða. Fylgni er milli jafnræðis kynjanna og arðsemi Sænska atvinnuþróunarstofnunin, NUTEK, hefur fundið fylgni milli jafnréttis innan fyrirtækja og arðsemi þeirra. Einnig er efling kvenna hjá fyrirtækjum mikilvægur þáttur í því fá rétta stjórnendahópinn, því vaxandi fjöldi rannsókna bendir til fylgni milli jafnréttis á meðal æðstu stjórnenda og arðsemi fyrirtækisins. Finnsk rannsókn hefur sýnt fram á að fyrirtæki með kvenkyns forstjóra eru að meðaltali heldur arðbærari en sambærileg fyrirtæki með karlkyns forstjóra. Í annarri rannsókn á 100 stærstu fyrirtækjunum sem skráð eru í Kauphöllina í London (LSE) reyndust 18 af 20 þeirra félaga sem hafa mest markaðsvirði (2003) hafa a.m.k. eina konu í stjórn. Þessar niðurstöður sýna að vísu ekki fram á orsakasamhengi milli hás hlutfalls kvenkyns stjórnenda og mikillar arðsemi, en þær sýna samt sem áður að karlar þurfa ekki endilega að vera við stjórnvölinn til að afkoman sé góð. Enn önnur rannsókn bendir til fylgni milli jafnvægis kynjanna í stjórnendahópum og nýsköpunarhæfni. Auk þess er afkoma fyrirtækja betri hafi fjöldi kvenna í stjórnendahópnum náð vissu lágmarki. Að taka kvenkyns starfsmenn með í reikninginn hjálpar fyrirtækjum að skilja og bregðast við breytingum sem eru að verða í starfsháttum, aðstæðum og fyrirtækjamenningu – allt frá breyttum væntingum og hlutverki karla til þess sveigjanleika og aðlögunar sem hækkandi meðalaldur og ný kynslóð starfsfólks kalla á. Document Actions |
