Ávinningur fyrir fyrirtæki
Þetta eru stórar áskoranir fyrir slík fyrirtæki í dag, sér í lagi þau smæstu, sem hafa takmörkuð fjárráð og mannafla. Lítil og meðalstór fyrirtæki hafa meiri þörf en önnur fyrir hæft starfsfólk, sem eykur framleiðni og aðlögunarhæfni fyrirtækisins og stuðlar þar með að nýsköpun og samkeppnishæfni.
Staðalímyndir kynjanna fela í sér viðteknar alhæfingar um mismunandi faglega getu og metnað karla og kvenna. Sumir vinnuveitendur telja öruggt að reiða sig á slíkar staðalímyndir þegar þeir ráða nýja starfsmenn, endurskipuleggja fyrirtækið eða ákveða að veita einhverjum stöðuhækkun.
Þegar hæfileikar kvenna og karla eru sameinaðir í fyrirtækjamenningu þar sem höfuðáhersla er lögð á færni, fagmennsku og árangur, geta karlar og konur unnið saman öllum til hagsbóta.
Kostirnir eru meðal annars:
- Aðgangur að og nýting víðfeðmari reynslu
- Meiri sköpunargleði, nýnæmi og hagnaður
- Fleiri og ánægðari viðskiptavinir
- Betri liðsandi meðal starfsfólks og minni hætta á málaferlum
- Betri ímynd fyrirtækisins út á við og meira verðmæti hluthafa.

