Málstofur í hverju landi
Með því að taka þátt í málstofum, fá þátttakendur tækifæri til að:
- ræða rannsóknargögn og reynslu fyrirtækja af ávinningi sem hlýst af kynjajafnrétti, fjölbreytni í starfsvali og jafnvægi milli kynja í ákvarðanatöku lítilla og meðalstórra fyrirtækja,
- greina hvernig staðalímyndir kynjanna valda ójafnvægi milli kynjanna og óskilvirkni í lífi einstaklinga, fyrirtækja og á vinnumarkaði,
- meta aðgerðaáætlanir og úrræði til að hjálpa litlum og meðalstórum fyrirtækjum að leysa úr læðingi möguleika, það er að stuðla að jafnrétti kynjanna í starfi og í stjórnunarstöðum og þannig nýta betur hæfni og kunnáttu karla og kvenna, fyrirtækjunum til framdráttar,
- skoða mikilvægi alþjóðlegrar stefnumótunar og lagareglna og á vettvangi Evrópusambandsins og í hverju landi fyrir sig,
- þróa raunhæfar áætlanir til að annað hvort miðla upplýsingum um ávinning fyrirtækja af kynjajafnrétti eða framfylgja einhverjum þeirra tillagna um stefnu til handa fyrirtækjum.
Hvernig taka má þátt
Þátttaka í málstofum eða ráðgjöf er ókeypis en aðgangur er takmarkaður.
Hala niður dagatali með málstofum í hverju landi:
Til að sækja um http://app-gender.itcilo.org eða fá nánari upplýsingar, skal hafa samband við samræmingaraðila átaksins eða miðstöð í þínu landi.

