Markhópar og þátttakendur
Málstofurnar eru sérsniðnar fyrir eftirfarandi markhópa:
- Aðilar sem tengjast viðskiptalífinu
- Starfsfólk verslunarráða og fagsamtök til stuðnings litlum og meðalstórum fyrirtækjum (sem starfa á tilteknum sviðum svo sem við stofnun fyrirtækja, nýsköpun, þjálfun og þróun á sviði viðskiptalífsins),
- Sérfræðingar/ráðgjafar á sviði mannauðar, starfsmannavali og þjálfun, þar með talið einkareknar ráðningaskrifstofur,
- Sérfræðingar/ráðgjafar á sviði þjálfunar frumkvöðla, skipulagi fyrirtækja og eftirliti með stjórn fyrirtækja,
- Stjórnendur frá opinberum stofnunum sem taka þátt í þróun, þjálfun og ráðningarþjónustu við lítil og meðalstór fyrirtæki.
- Valdir eigendur og stjórnendur lítilla og meðalstórra fyrirtækja
- Frumkvöðlar, konur og karlar, sem bera ábyrgð á ákvarðanatöku í fyrirtækjasamböndum eða hjá samstarfsaðilum,
- Eigendur eða starfsfólk lítilla og meðalstórra fyrirtækja sem bera ábyrgð á stjórnun mannauðs eða lykilþáttum í stjórnun fyrirtækja svo sem gæðum, framleiðni og nýsköpun.
- Aðrir hagsmunaaðilar
- Fulltrúar samtaka um jöfn tækifæri eða tengslanet sem taka beinan þátt í því að stuðla að kynjajafnrétti í einkageiranum,
- Fulltrúar endurmenntunar á vegum stéttarfélaga, ráðningaþjónustur, fulltrúar starfsþjálfunar, rannsókna og framhaldsmenntunar.
Þátttakendur munu:
- hafa viðurkennda hæfni, vegna stöðu og faglegrar ábyrgðar stofnanna þeirra, til að ná til og hafa áhrif á stjórnunarhætti lítilla og meðalstórra fyrirtækja með virkum hætti þar sem beitt er þjálfun, ráðgjöf, samskiptum við frumkvöðla, stjórnendur og starfsmenn;
- vera með virkt tengslabet og hafa þekkingu á þeim áskorunum og tækifærum sem lítil og meðalstór fyrirtæki í landi þeirra standa fyrir á ýmsum sviðu atvinnulífsins.

