Skýrslur í hverju landi
Safn skýrslna frá hverju landi um ástand mál varðandi aðskilnað kynjanna og lítil og meðalstór fyrirtæki fyrir málstofur í löndum Evrópu og EFTA (Ísland og Noregur).
Tekst efnahagslífinu í Evrópu að nýta til fulls mannauð sinn?
Skýrslur landanna eru innlegg í umræðuna frá sjónarhóli kynjaskiptingar.
Gögnunum er ekki ætlað að gefa tæmandi mynd af málefnum kynjajafnréttis á vinnumarkaði í löndunum sem við á. Markmið þeirra er fremur að gera úrræðin sem átakið býður gagnlegri með upplýsingum frá hverju landi til handa allra þeirra sem leggja sig fram um að efla samkeppni og framleiðni. Í þeim er safnað nýjustu tölfræðilegum upplýsingum og þeim lýst um mismunandi aðferðir karla og kvenna til að komast inn á vinnumarkaðinn og hasla sér þar völl í mismunandi löndum. Þær hafa að geyma upplýsingar um gildandi lagaleg ákvæði, aðgerðir hins opinbera og einkaaðila og góða starfshætti. Einnig eru gefin dæmi um áhrif staðalímynda kynjanna í því skyni að hvetja til umræðna og aðgerða í fyrirtækjum. Endanlegt markmið er að veita haldbærar tillögur um hvernig lítil og meðalstór fyrirtæki í tilteknum löndum geti yfirstigið staðalímyndir kynjanna og nýtt viðskiptalega möguleika sem felast í kynjajafnrétti.
Skjölin eru fáanleg á ensku.
AT | BE | BG | CY | CZ | DE | DK | EE | EL | ES | FI | FR | HU | IE | IS | IT | ML | LV | LT | LU | NL | NO | PL | PT | RO | SL | SK| SE | UK

